Kirkja í mótun – Hádegisfyrirlestrar í hádeginu á þriðjudögum í október

Kirkja í mótun – Hádegisfyrirlestrar í hádeginu á þriðjudögum í október

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort

þri 27. okt 2026 12:00

Bústaðu viðburðinn!

Kirkja í mótun
Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í október 2026 kl. 12:00–13:00. Léttar veitingar í boði.
Á þriðjudögum kl. 12.00–13.00 í október verður boðið upp á fræðandi fyrirlestra í Hallgrímskirkju. Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar gefa fyrirlestrarnir að þessu sinni áheyrendum tækifæri til að kynnast kirkjubyggingunni nánar, hugmyndunum sem liggja að baki hönnunar hennar og þeirri sögu sem mótað hefur kirkjuna, umhverfi hennar og stöðu hennar sem eins helsta kennileitis Reykjavíkur.
Arkitektinn Andrés Narfi Andrésson hefur fyrirlestraröðina þriðjudaginn 6. október og fjallar þar um Hallgrímskirkju, tilurð hennar og arkitektúr.
Einnig gefur Andrés Narfi sérstakan hátíðarfyrirlestur fimmtudaginn 22. október kl. 17.00 þar sem hann fjallar nánar um Hallgrímskirkju og sögu hennar.
Dagana 18.-25. október verður sérstök afmælisvika í tilefni af vígsluafmælinu þann 25. október sem haldið verður upp á með ýmsum viðburðum. Hátíðarfyrirlestur Andrésar Narfa er hluti af afmælisvikunni.
Fyrirlestrarnir eru á íslensku
HALLGRÍMSKIRKJA – Í MÓTUN