Viltu búa til með okkur fallegt krukkuskraut sem nýtist á ýmsan hátt? Hægt er meðal annars að breyta krukkunni í kertastjaka til að lýsa upp skammdegið eða sem geymslu undir skartgripi, svo eitthvað sé nefnt.
Við skreytum krukkurnar með afskrifuðum bókum, borðum og öðrum efnivið sem bókasafnið á. Það verða krukkur í allskonar stærðum á staðnum en gestum er velkomið að koma með krukkur að heiman.
Fyrir hverja er smiðjan?
Smiðjan hentar fullorðnum og eldri börnum. Yngri börn eru velkomin en þurfa að vera í fylgd fullorðins sem getur veitt aðstoð.
Við hvetjum fullorðna til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í notalegri og skemmtilegri stund. Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf.
Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á:
Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Nánari upplýsingar:
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is
Krukkuskreytingasmiðja
Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort
fim 5. nóv 2026 15:30