Lalli Johns - Bíótekið!
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
sun 4. okt 2026 17:15
Lalli Johns, í leikstjórn Þorfinns Guðnasonar, er einlæg og eftirminnileg heimildamynd um mann sem lifði lengst af á jaðri íslensks samfélags. Í tvö ár fylgdi Þorfinnur Lalla eftir milli kráa, fangelsis og félagsþjónustu.
*Sérstakur viðburður: Fyrir myndina munu Margrét Valdimarsdóttir dósent í félags- og afbrotafræði við HÍ og Jón Gunnar Bernburg prófessor í félagsfræði við HÍ ræða myndina og fjalla um hvernig félagslegar aðstæður, jaðarsetning og viðbrögð samfélagsins geta mótað líf einstaklinga.
Lalli strengir þess ítrekað heit að snúa við blaðinu en áfengi, fíkn og afbrot halda áfram að móta líf hans. Áhorfandi lærir þó fljótt að undir hrjúfu yfirborðinu er hlýr, glaðvær og einstaklega bjartsýnn maður sem mætir mótlæti með húmor og óbilandi trú á að næsti dagur verði betri en sá síðasti.
Lalli Johns vakti mikla athygli við frumsýningu og varð ein aðsóknarmesta íslenska heimildamynd síns tíma auk þess að hljóta Edduverðlaunin sem besta heimildamyndin.
Sýnd í Bíótekinu sunnudaginn 4. október kl 17:15!