lára - í bleiku ljósi ALBUM RELEASE
Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Kort
fös 2. okt 2026 20:00
lára er íslensk tónlistarkona sem semur og pródúserar raftónlist. Hún hefur verið á kafi í tónlist frá unga aldri, hóf nám í klassískum píanóleik og stundar nú nám í raftónlist og lagasmíðum við Menntaskólann í Tónlist. lára vinnur með mismunandi hljóð og skapar fjölbreyttan og marglaga hljóðheim.
í bleiku ljósi er fyrsta sólóplata láru. Áður gaf hún úr smáskífuna þekki ekki, sem hlaut góðar viðtökur innan íslensku raftónlistarsenunnar. Lagið var meðal annars valið „besta íslenska lag ársins 2025“ af útvarpsþættinum Straumi á X-inu 977, í umsjón Óla Dóra.
Platan inniheldur 12 lög sem lára hefur samið og pródúserað undanfarin tvö ár. Hún sá jafnframt um allar upptökur og hljóðblöndun, en Curver Thoroddsen sá um masteringu.