Las Vegas Christmas Show 2026

Las Vegas Christmas Show 2026

Gamla bíó, Ingólfsstæti 2a, 101 Reykjavík Kort

sun 6. des 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Las Vegas stemning, stórhljómsveit, stórkostlegir söngvarar og sannkölluð hátíðarupplifun.

Las Vegas Christmas Show snýr aftur í Gamla Bíó 3.–6. desember 2026 með Geir Ólafsson í fararbroddi, stórhljómsveit undir stjórn hins heimsþekkta Don Randi og glæsilegum hópi íslenskra og erlendra flytjenda.

Á sviðinu koma meðal annars fram Pálmi Gunnarsson, Eiríkur Hauksson, Richard Scobie, Arney Ingibjörg og Rúnar Þór, ásamt framúrskarandi hljóðfæraleikurum frá Los Angeles. 

Las Vegas Christmas Show hefur skapað sér sérstakan sess í íslensku jólahaldi og undanfarin ár hefur verið uppselt á allar sýningar. Hér sameinast kraftmikil lifandi tónlist, glæsilegar útsetningar, húmor og hátíðarstemning í sannri Las Vegas-upplifun. 

Hvort sem þú kemur með makanum, vinahópnum, fjölskyldunni eða samstarfsfólkinu er þetta kvöld til að gera sér dagamun og koma jólunum af stað með stæl. 

Fyrir þá sem vilja gera kvöldið að heilli upplifun er hægt að byrja með fordrykk og hátíðlegu borðhaldi frá kl. 18:30 áður en sýningin hefst kl. 20:00.

Einnig er hægt að kaupa miða eingöngu á tónleikana.

🎟 Tónleikar – 6.900 kr.
🥂 Matur, fordrykkur og tónleikar – 19.500 kr. 

Las Vegas Christmas Show hentar einstaklega vel fyrir jólaskemmtanir fyrirtækja, starfsmannahópa, viðskiptavini, vinahópa og fjölskyldur.
 
Gefðu fólkinu þínu eitthvað sem það man eftir — frábæran mat, einstaka stemningu og glæsilega tónlistarsýningu í hjarta Reykjavíkur.

Undanfarin ár hafa allar sýningar selst upp og færri komist að en viljað.

Tryggðu þér því miða tímanlega á Las Vegas Christmas Show 2026 og upplifðu eitt glæsilegasta jólakvöld ársins.

Veldu sýningardag og bókaðu þitt sæti núna.