Láttu ljós þitt skína - Lampaskermasmiðja

Láttu ljós þitt skína - Lampaskermasmiðja

Borgarbókasafnið | Menningarhús Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort

sun 18. okt 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Hér áður fyrr treysti fólk á eld og einföld kerti til að lýsa upp skammdegið. Í dag er lýsing stór partur af list og hönnun og lampi er ekki alltaf bara lampi. Í þessari smiðju munum við skoða þróun ljóss á heimilum og þátttakendur fá að hanna og gera sinn eigin lampaskerm til að fegra heimilið. Allt hráefni verður á staðnum en ef fólk á eitthvað heima fyrir sem það vill nýta þá er velkomið að koma með það.
Flóra Guðlaugsdóttir er kennari og listakona og hefur haldið ýmiskonar listasmiður fyrir bæði fullorðna og börn. Flóra nýtir ólíka listmiðla og hefur gaman af því hjálpa fólki að finna sinn innri listamann.
Öll velkomin á meðan pláss leyfir.
Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður María Bjarnardóttir, sérfræðingur
holmfridur.maria.bjarnardottir@reykjavik.is | s. 411 6202