List og náttúra

List og náttúra

Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort

mið 18. nóv 2026 16:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið velkomin í List og Náttúru miðvikudaginn 18. nóvember á milli 16:00 og 17:00 í Náttúrusafni Kópavogs.

Allur efniviður verður á staðnum og aðgangur ókeypis.

List og náttúra er smiðja þar sem leitast er við að skapa úr náttúrulegum og sjálfbærum efniviði. Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrusafn Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar.

Börnin vinna undir leiðsögn Áslaugar Írisar Friðjónsdóttur, myndlistarmanns og skapa eigið listaverk. Fjölskyldur geta komið á hvaða tíma sem hentar innan þessa tímaramma, og staldrað stutt við eða lengi. Náttúran verður skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni.