Málstofa um Evrópska tungumálagagnasvæðið
Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavík Kort
fös 13. nóv 2026 09:00
Bústaðu viðburðinn!Málstofa um Evrópska tungumálagagnasvæðið
Hvernig getum við nýtt tungumálagögn til að efla íslensku í stafrænum heimi?
Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista og CLARIN-IS bjóða til málstofu um Evrópska tungumálagagnasvæðið (e. European Language Data Space).
Föstudaginn 13. nóvember 2026, kl. 9.00–16.30
Veröld – hús Vigdísar
Málstofan leiðir saman sérfræðinga úr atvinnulífi, opinberri stjórnsýslu og rannsóknasamfélaginu til að ræða mikilvægi tungumálagagna fyrir þróun máltækni og gervigreindar á Íslandi. Þar gefst tækifæri til að miðla þekkingu, ræða áskoranir og kanna hvernig efla megi íslensk málgögn og nýta þau við þróun gervigreindarlausna fyrir íslensku.
Á dagskrá verða kynningar á áætluninni Stafræn Evrópa (Digital Europe), Evrópska tungumálagagnasvæðinu og evrópsku samstarfi um máltækni á vegum ALT-EDIC.
Einnig verða erindi og pallborðsumræður um eftirfarandi efni:
Máltækni og innviði fyrir tungumálagögn
Tungumálagögn fyrir rannsóknir og nýsköpun
Mállíkön fyrir lítil tungumál: tækifæri, hindranir og samstarf
Íslensk málgögn: auðlindir, aðgangur og samnýting
Tungumálagögn og þjónustu: íslenskar lausnir og þarfir
Tungumálagögn, fjölmiðla, bókasöfn og skjalasöfn
Gagnafullveldi: aðgang, réttindi og siðferði
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, flytur ávarp.
Málstofan er ætluð sérfræðingum og starfsfólki fyrirtækja, háskóla, opinberra stofnana, fjölmiðla, bókasafna og skjalasafna, sem og nemendum og öllum sem hafa áhuga á íslensku, máltækni og gervigreind.
Viðburðurinn er haldinn í tengslum við dag íslenskrar tungu.
Dagskráin fer að hluta fram á íslensku og að hluta á ensku.
Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg https://ec.europa.eu/eusurvey/runner/LDS-WS2-IS
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Öll velkomin!