Már Gunnarsson & The Royal Northern College of Music Session Orchestra
Hljómahöll | Stapi, Hjallavegur 2, 260 Njarðvík Kort
fös 27. nóv 2026 20:00
Kæru vinir. Í haust verða fjögur ár liðin frá því að ég, Már, flaug úr hreiðrinu yfir hafið á vit ævintýranna. Nú er ég á lokaárinu við hinn frábæra RNCM háskóla í Manchester. Af því tilefni tel ég í þriðju og síðustu tónleikana mína á Íslandi ásamt the Royal Northern College of Music session Orchestra.
Á tónleikunum verður farið um víðan völl, auk tónlistar eftir mig verða flutt vel valin lög sem hafa mótað mig í gegnum tíðina í nýjum og glæsilegum sinfóníuútsetningum.
Sérstakur heiðursgestur tónleikanna verður hinn eini sanni Laddi.
RNCM Session Orchestra skipa þrjátíu og þrír ungir stórkostlegir hljóðfæraleikarar. Þessir tónlistarmenn eru upprennandi stjörnur ensku sinfóníuelítunnar og koma reglulega fram með hljómsveitum á borð við BBC Philharmonic, The Hallé og Opera North í Manchester.
Það hefur reynst mér ómetanlegur lærdómur og mikill heiður að hafa starfað með þessu hæfileikaríka tónlistarfólki undanfarin ár. Ég er fullur tilhlökkunar að bjóða hópnum að heimsækja okkar fallega heimabæ, Reykjanesbæ.
Verkefni af þessari stærð er gríðarlega umfangsmikið og stuðningur heimamanna og góðra styrktaraðila hefur verið ómetanlegur í þessari vegferð.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Hljómahöll og eiga með ykkur ógleymanlega kvöldstund.
Flytjendur:
Már Gunnarsson
Laddi (Þórhallur Sigurðssson)
Ísold
Íva
Hljómsveitarstjóri: prófessor Andy Stott
Hljóðfæraleikarar:
Fyrsta flauta: Jessica Pun
Önnur flauta/Piccolo: Adele Bracegirdle
Óbó: Elizabeth Russell
Alto Saxafónn: Matthew Hodson
Tenór/Sópran Saxafónn: Zack Smith
Baritón Saxafónn: Samuel Lightwing
Franskt horn: Thomas Hutchison, Joseph Clarkson
Trompet: Robbie Richardson, Alex Browne
Básúna: Oliver Bartlett
Píanó: Már Gunnarsson
Hljómborð: Aaron Le Maistre
Gítar: Guy Bandell
Bassi: Max Cooper
Slagverk: Sam Garbutt, Daniel Malone
Fyrsta fiðla: Lian Yip, Fionnghuala Drumgoole, Elanor Leydecker, Coraleigh Edwards
Önnur fiðla: Elana Gewirtz, Eleanor Prout, Ellie Shek, Emily Ampt
Víólur: Éadaoin Drumgoole, Nadia Eskandari
Selló: Lucy Pye, Stefan Rogers
Bakraddir: Matt Vining, Owen Edwards, Finn Flood
Samstarfsaðilar: Uppbyggingarsjóður Suðurnesja, Courtyard by Marriott Reykjavík Keflavík Airport, Sporthúsið Reykjanesbæ, K. Steinarsson, Bus4u Iceland, Rétturinn, Hamborgarabúlla Tómasar, Kökulist Bakarí, Skólamatur og Reykjanesbær.