Menningarhátíðir og innviðir sveitarfélaga - Samtal um skapandi greinar
Gróska, Bjargargata 1, 101 Reykjavík Kort
fim 1. okt 2026 08:30
Bústaðu viðburðinn!Hvaða innviðir eru til staðar hjá sveitarfélögum af ólíkri stærð til að halda og styðja við menningarhátíðir? Við fáum þrjú spennandi erindi frá reynslumiklum sérfræðingum sem nálgast viðfangsefnið frá ólíkum sjónarhornum.
Áskell Heiðar Ásgeirsson fjallar um aðgengi að fjármagni og öðrum innviðum fyrir frumkvöðla og hátíðarhald í minni sveitarfélögum og deilir reynslu sinni sem Bræðslustjóri á Borgarfirði eystri. Hvert getur fólk leitað eftir stuðningi við framkvæmd hátíða og hvaða innviðir þurfa að vera til staðar?
Erna Kaaber rýnir í fjármögnun svæðisbundinna aðgerðaáætlana og menningarinnviða sveitarfélaga. Hvernig endurspeglast þróunin í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027? Er menning skilgreind of þröngt þegar kemur að opinberri fjármögnun? Eru viðhald íþróttamannvirkja og menningarhátíðir að sækja fjármagn í sama pott?
Þórgnýr Dýrfjörð setur menningarhátíðir í samhengi við grunnþjónustu sveitarfélaga og þróunina á Akureyri. Að hvaða leyti styðja hátíðir við samfélagið í heild? Hver nýtur góðs af hátíðum og hvaða hlutverki gegna sveitarfélög í því að skapa þeim jarðveg?
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) stendur fyrir Samtali um skapandi greinar í samstarfi við Fenris Creations. Viðburðurinn fer fram 1. október 2026 kl. 08:30-10:00.
Hægt er að upplifa viðburðinn í streymi eða á staðnum í húsakynnum Fenris Creations á 3. hæð í Grósku, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík. Hlekkur á streymið verður birtur á þessari viðburðasíðu.
Að erindum loknum lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal fundargesta á staðnum.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
Samtalið fer fram á íslensku.
Vinsamlegast skráið mætingu hér: rssg.is/hvadtharfadraeda
Upplýsingar um frummælendur
Áskell Heiðar Ásgeirsson er Bræðslustjóri og lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum, þar sem hann kennir viðburðastjórnun. Hann hefur víðtæka reynslu af skipulagningu og stjórnun viðburða. Hann var meðal stofnenda tónlistarhátíðarinnar Bræðslunnar á Borgarfirði eystri og hefur stýrt hátíðinni allar götur síðan.
Erna Kaaber er rannsakandi sem hefur kannað samspil menningar og nýsköpunar og hvernig menning og skapandi greinar geta skapað tækifæri til sjálfbærrar þróunar og efnahagslegrar uppbyggingar í landsbyggðum. Hún hefur sérstaklega rýnt í hvernig skapandi greinar geta dregið úr landfræðilegum mismuni og stuðlað að auknu jafnvægi milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Þórgnýr Dýrfjörð er forstöðumaður menningar-, markaðs- og atvinnumála hjá Akureyrarbæ. Akureyri er vettvangur margra og mjög fjölbreyttra stærri árlegra viðburða á sviði menningar og íþrótta, allt frá Andrésar Andarleikunum til Bíladaga, frá Einni með öllu til Akureyrarvöku og A-gjörningahátíðar, svo fáein dæmi séu nefnd. Þórgnýr þekkir því vel til á þessu sviði, bæði sem framkvæmdaraðili en einnig sem fulltrúi sveitarfélags sem styður við og nýtur góðs af viðburðum