Óperudagar safna fyrir nýju píanói fyrir Tjarnarbíó!
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort
fim 1. okt 2026 23:59
Uppfært 23. september
Söfnunin gengur vel, við erum búin að finna hljóðfæri og nú vantar aðeins um 160 þúsund krónur að settu markmiði!
Í tilefni af 10 ára afmæli Óperudaga, ætlum við að hrinda af stað söfnun til að hægt sé að kaupa nýtt eða notað hljóðfæri sem hentar söng- og tónleikhússenunni. Meðlimir hennar koma oft fram í Tjarnarbíói en í augnablikinu er ekki gott hljóðfæri í leikhúsinu, aðeins gamall garmur í eigu Óperudaga. Hann hefur þjónað okkur og öðrum vel en hann er einfaldlega búinn að syngja sitt síðasta og segja upp störfum og því er kominn tími til að finna nýtt hljóðfæri.
Margt smátt gerir eitt píanó!
Setjum okkur markmið, náum þessu fyrir 1. október!
Reikningsnúmer
133-26-11890
kt. 6005160860 (Pera óperukollektíf, félagasamtökin sem standa að baki Óperudögum)
Merkið færsluna sem PÍANÓ!
Ef fjárhæðin sem safnast verður hærri en kostnaður við hljóðfærið sjálft, píanóstól og flutningskostnað á hljóðfærinu, mun afgangurinn renna óskertur í píanóstillingar- og viðhaldsjóð píanóisins.
Umsjón hljóðfærisins verður í höndum Óperudaga sem verður skráður eigandi hljóðfærisins.
Algjört gagnsæi mun ríkja um söfnunina og allar tölur birtar opinberlega á síðu Óperudaga að henni lokinni.
Staða söfnunar 23. september er: 155.000 krónur!
***Uppfærsla vegna breytts orðalags söfnunarinnar***
Við höfum skýrt fyrirkomulag söfnunarinnar aðeins betur. Píanóið sem nú er í Tjarnarbíói er í eigu Óperudaga og markmiðið með söfnuninni er finna betra hljóðfæri í þess stað.
Óperudagar verða eigandi hljóðfærisins og bera ábyrgð á rekstri þess og viðhaldi. Von okkar er að nýtt píanó geti, líkt og það gamla, nýst sem flestum úr söng- og tónlistarleikhússenunni.
Við erum ótrúlega þakklát öllum sem þegar hafa lagt okkur lið – nú þegar hafa safnast 132.000 krónur! Takk fyrir að hjálpa okkur við að ná settu markmiði!