Opið samtal um íslenskuna
Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Kort
fim 19. nóv 2026 16:30
Verið hjartanlega velkomin í Iðnó, fimmtudaginn 19. nóvember.
Vinsamlegast staðfestið mætingu hér: https://tally.so/r/9qVM74
Máltæknifyrirtækið Bara Tala, Gefum íslensku séns, ásamt Brimi efna til viðburðar þar sem staða íslenskunnar meðal annarsmálshafa á Íslandi verður rædd.
Hvernig sköpum við umhverfi þar sem fólk fær raunveruleg tækifæri til að læra og nota íslensku og tryggjum þannig að íslenska verði áfram nothæft samskiptamál á Íslandi?
Samtal
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Pálmi Hafþór Ingólfsson, fræðslustjóri Brims, ræða stöðu og framtíð íslenskunnar.
Erindi
Valerio Gargiulo, rithöfundur og þýðandi, flytur stutt erindi sem byggir á grein hans: „Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku?“
Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Hornsteins, flytur stutt erindi um íslenskukennslu á karllægum vinnustað.
Pallborðsumræður
Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir stýrir:
Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Peter Weiss, stjórnarformaður Gefum íslensku séns.
Að lokinni dagskrá mun plötusnúðurinn Doctor Victor þeyta skífum og Jökull Júlíusson í Kaleo tekur lagið með honum.
Vinsamlegast skráið mætingu.
Við hlökkum til að sjá ykkur!