Orgóber 2026 🎶 - Elmar Þór Hauksson syngur söngperlur við meðleik Arnórs Vilbergssonar.

Orgóber 2026 🎶 - Elmar Þór Hauksson syngur söngperlur við meðleik Arnórs Vilbergssonar.

Keflavíkurkirkja, Kirkjuvegur 21, 230 Keflavík Kort

sun 4. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Orgelið fær að njóta sín í Keflavíkurkirkju í október þegar tónleikaröðin Orgóber fer fram, þar sem orgelið er í fyrirrúmi.

Fyrstu tónleikar Orgóber verða sunnudaginn 4. október kl. 20.

Þar leiða saman hesta sína Elmar Þór Hauksson tenór og Arnór Vilbergsson, organisti við Keflavíkurkirkju.

Þeir félagar hafa átt farsælt tónlistarsamstarf um langt skeið og þekkja því vel inn á hvor annan í tónlistinni.

Á efnisskránni verða klassískar söngperlur, þar sem kraftmikil tenórrödd Elmars og hljómríkt orgel Keflavíkurkirkju fá að njóta sín saman.

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í Keflavíkurkirkju á fallega tónlistarstund og upphaf Orgóber 2026.