Prjónakvöld Vínstofunnar

Prjónakvöld Vínstofunnar

Vínstofa Friðheima, Skólabraut 6, 806 Reykholt Kort

fim 1. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Næsta prjónagest þarf varla að kynna, en það gleður mig að fá Tinnu Laufdal til okkar á næsta Prjónakvöld Vínstofunnar núna á fimmtudaginn 1.október.

Tinna er fatahönnuður, textílkennari, stofnandi tiny viking og hönnuður peysunnar Skjól sem mjög margir hafa haft á prjónunum hjá sér síðan uppskriftin kom út. Handavinna hefur fylgt Tinnu frá því hún man eftir sér og hún hefur margra ára reynslu af textílkennslu.

Tinna brennur fyrir því að hvetja fólk til að finna sinn eigin stíl og skapa sjálft föt og fylgihluti sem það langar til að nota. Undanfarin ár hefur hún hjálpað fólki að læra bæði að prjóna og sauma með uppskriftum, kennslumyndböndum og námskeiðum.

Endurnýting og meðvituð efnisnotkun skipa einnig stóran sess í hennar nálgun. Hún leggur áherslu á gamlar handverkshefðir, náttúruleg efni og að búa til vandaða hluti sem hægt er að nota lengi – jafnvel láta ganga á milli kynslóða.

Það verður skemmtilegt að heyra Tinnu segja frá hönnuninni sinni, sköpunarferlinu, handverkinu og því hvernig við getum fundið okkar eigin leið í prjóni, saumaskap og fatagerð.

🧶 Kynningin byrjar kl. 20 en endilega mætið fyrr og fáið ykkur gott í gogginn, eldhúsið er opið til kl. 21 og njótið með handavinnuna með ykkur.

Þar sem það er uppbókað, væri gott að fá tilkynningu ef þið eigið bókað og komist ekki.

Hlakka til að sjá ykkur!

Flytjendur