Ráðstefna - framtíð vindorku á Íslandi
Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavík Kort
lau 21. nóv 2026 13:00
Dagsetning: 21. nóvember 2026
Tímasetning: 13:00 - 16:30
Staðsetning: Veröld - Hús Vigdísar, fyrirlestrarsalur VHV 023, Háskóli Íslands.
Skipuleggjendur: Ungir umhverfissinnar, Landvernd, ungmennafulltrúar Íslands hjá Sameinuðu Þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunnar og Nemendafélag mastersnema í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands.
Ráðstefnan kemur til í kjölfar umræðu um fyrirhugaða uppbyggingu vindorkuvera á Austurlandi. Þar hefur aðkoma nærsamfélaga að ákvarðanatöku um orkumál, möguleg umhverfisáhrif og togstreita orkuskipta og náttúruverndar verið á vörum margra. Fyrsta vindorkuver Íslands er nú gangsett en almennur skilningur á hlutverki vindorku í íslensku nútímasamfélagi er enn óljós.
Markmiðið er jafnframt að skapa uppbyggilegan og aðgengilegan vettvang þar sem sérfræðingar og aðrir þátttakendur geta miðlað þekkingu, kynnt sér ákvarðanatökuferli og samspil náttúruverndar og orkuskipta til framtíðar.
Viðburðurinn er gjaldfrjáls en við biðjum áhugasama um að skrá sig hér:
https://www.eventbrite.com/e/2003361381822?aff=oddtdtcreator