Reykjavík er okkar!

Reykjavík er okkar!

Sjóminjasafnið í Reykjavík, Grandagarður 8, 101 Reykjavík Kort

fös 20. nóv 2026 13:30

Bústaðu viðburðinn!

Reykjavík er okkar! er yfirskrift sýningar Melaskóla í Bryggjusal Sjóminjasafnsins í Reykjavík sem opnar föstudaginn 20. nóvember kl. 13:30-14:30. Sýningin er afrakstur verkefnis sem nemendur í 7. bekk Melaskóla unnu í samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur.

Tilgangur verkefnisins er að fá nemendur til að velta fyrir sér heimildagildi ljósmynda og um leið að kynnast borginni sinni, Reykjavík og sögu hennar betur. Í byrjun verkefnisins fengu nemendur leiðsögn frá safnkennara Ljósmyndasafns Reykjavíkur sem fræddi nemendur um heimildagildi ljósmynda og kenndi þeim að lesa upplýsingar úr ljósmyndum. Einnig fengu nemendur fræðslu um sögu Reykjavíkur á sýningu Borgarsögusafns í Aðalstræti 10 og 16.

Í kjölfarið fengu nemendur kennslu í að leita að myndum á myndavef Ljósmyndasafnsins. Þeim var skipt í þriggja til fjögurra manna hópa og hver hópur valdi eina mynd úr Ljósmyndasafninu. Nemendur áttu að rýna vel í myndina og skrá niður allar þær upplýsingar sem hægt var að fá með því að skoða myndina. Síðan fóru nemendur á stúfana og tóku mynd af sama stað, frá sama sjónarhorni og áttu að velta fyrir sér þeim breytingum sem hafa orðið á svæðinu frá því að upprunalega myndin var tekin.

Verið öll velkomin!

Sýningin er opin daglega kl. 10-17 til 6. desember.

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á Sjóminjasafninu, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Sýningin er í Bryggjusal, á fyrstu hæð safnsins rétt hjá inngangi safnsins. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.