Rými fyrir höfunda | Þagnafár

Rými fyrir höfunda | Þagnafár

Borgarbókasafnið | Menningarhús Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort

lau 3. okt 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Garibaldi les úr nýjustu ljóðabók sinni, Þagnafár. Hann hefur gefið út ellefu ljóðabækur. Handrit hans að Sjónbaugum hlaut viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar árið 2000.

Þagnafár, kom út í vor en þar skáldar hann sögu föður síns sem fæddist í Hælavík á Hornströndum. Ljóðin fjalla um áföll sem faðirinn lendir í sem drengur og fylgja honum alla ævi og valda honum iðulega búsifjum.
Ljóðin sýna líf föðurins og flótta hans frá þessum áföllum sem brjótast fram þegar hann jarðsetur yngsta son sinn. Ljóðin lýsa magnþrungnum harmi og tekur myndmálið mið af hrikalegri náttúru á Hornströndum þar sem hann ólst upp. Þar lenti hann í miklu áfalli sem lagðist mjög á sál hans ekki síst vegna algerrar þöggunar. Í sjötíu bragandi dúfur frá 2024 fjallaði Garibaldi um samband sitt við yngsta bróður sinn sem er jarðsunginn í Þagnafári – en fyrrnefnda bókin var kölluð bróðurtorrek; Þagnafár gæti verið í senn bróðurtorrek og sonartorrek. Rétt er að taka fram að faðir Garibalda var mestalla ævi sjómaður en einnig verkamaður. Hann byrjaði á sjónum fjórtán ára.
Rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum geta pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu. Höfundum er frjálst að nýta rýmið eins og þeim hentar, til dæmis fyrir upplestur (jafnvel í samráði við aðra höfunda), útgáfuhóf og kynningar.
Öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Verkefnastjóri | Bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is | 411 6149

Flytjendur