Saman í gegnum ADHD - foreldrahittingur
Mannréttindahús ÖBÍ, Sigtún 42, 105 Reykjavík Kort
þri 13. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!ADHD samtökin í samvinnu við Sjónarhól ráðgjafarmiðstöð halda áfram með foreldrahóp fyrir foreldra, forráðafólk og aðstandendur barna með ADHD, Saman í gegnum ADHD.
Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi stýrir hópnum.
Þarna er vettvangur þar sem foreldrar geta skipst á ráðum, fengið svör við spurningum og vangaveltum, deilt reynslu sinni og sigrum ásamt því að finna tengingu við aðra foreldra í svipuðum sporum.
Öll velkomin.
Hópurinn hittist einu sinni í mánuði á þriðjudögum kl. 20:00 í Mannréttindahúsinu, Sigtún 42 105 Reykjavík