Soffía Björg á Kaffi Flóru

Soffía Björg á Kaffi Flóru

Kaffi Flóra, Grasagarðurinn Laugardal, 104 Reykjavík Kort

fim 8. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Soffía og vinir bjóða uppá létta stemmingu og sæta sveitasöngva í hinu fallega umhverfi Kaffi Flóru.

Miðasala á tix og einnig verður posi á staðnum.

Á ferli sínum hefur Soffía tekið þátt í fjölbreyttum tónlistarverkefnum. Ásamt því að vera meðlimur í bluegrass-sveitinni Brother Grass, hefur sólóferill hennar blómstrað.

Tónlist hennar spannar allt frá nýjum útgáfum af eldri lögum til frumsaminna verka og samstarfsverkefna. Þar á meðal er lagið I Lie, sem fékk mikla athygli í útvarpi og líka fyrir tónlistarmyndband lagsins. Einnig má nefna útgáfu hennar á lagi sem amma hennar, Soffía Karlsdóttir gerði frægt, Það er draumur að vera með dáta, í nýrri útgáfu sem ber heitið Draumur að fara í bæinn, auk lagsins Bonafide, sem hún flutti ásamt Krumma Björgvins í sjónvarpsþættinum Hljómskálinn.

Nýlega hefur Soffía gefið út þrjú smáskífulög af væntanlegri plötu, þar á meðal lagið Dreamcatcher.

Með Soffíu á Kaffi Flóru verða:

Fríða Dís – bassi og bakraddir

Pétur Ben – gítar og bakraddir

Flytjendur