Sofi Oksanen í Bókabúð Forlagsins - Samtal við Silju Báru Ómarsdóttur

Sofi Oksanen í Bókabúð Forlagsins - Samtal við Silju Báru Ómarsdóttur

Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Kort

fös 13. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Iceland Noir og Forlagið kynna off venue viðburð í samstarfi!

Finnski metsöluhöfundurinn Sofi Oksanen verður til viðtals á sviði í Bókabúð Forlagsins föstudaginn 13. nóvember næstkomandi kl. 17:00.

Sofi er einn fremsti rithöfundur Norðurlanda. Hún sló í gegn með skáldsögunni Hreinsun, sem hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010 og hefur verið þýdd á tugi tungumála. Í bókum sínum hefur hún beint sjónum að sögu Eistlands og skugga Sovétríkjanna, og fáir höfundar tala af jafnmiklum krafti um samtímann.

Oksanen er stödd hér á landi vegna viðburða á vegum hátíðarinnar Iceland Noir, en þessi viðburður í samstarfi við Forlagið er öllum opinn.

Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ræðir við Sofi, en í forgrunni verður bókin Í sama strauminn: Stríð Pútíns gegn konum.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir!