Sögur | Tónsmíðar
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
þri 27. okt 2026 15:00
Staðsetning: Verkstæðið, 5. hæð
Borgarbókasafnið í samstarfi við Sögur býður börnum í 5. – 7. bekk að læra að búa til sitt eigið lag undir leiðsögn Hrafnkels Arnar Guðjónssonar.
Námskeiðið er þrjú skipti, þriðjudaginn 27. október, fimmtudaginn 29. október og þriðjudaginn 3. nóvember. Skráning er á heimasíðu Borgarbókasafnsins: https://borgarbokasafn.is/events/498e432f-8fac-47a7-b680-4862b1e9b308,20261027
Námskeiðslýsing:
27. október: Farið er yfir grunn í tónlistar- og textagerð og í hugmyndavinnu. (15:00-16:00)
29. október: Börnin vinna að tónlist sinni í minni hópum (1 tími einhvern tíma á milli 15:00-18:10)
3. nóvember: Börnin leggja lokahönd á lagið sitt og undirbúa það til sendingar í samkeppni Sagna (1 tími einhvern tíma á milli 15:00-18:10)
Í lok námskeiðsins eru börnin hvött til þess að taka þátt í samkeppni Sagna. Eftir áramót verða þrjú lög valin og þau börn tækifæri að fullvinna lagið sitt með pródúsent og tónlistarmönnum. Lögin þrjú verða flutt á verðlaunahátíð Sagna næsta vor í beinni útsendingu á RÚV. Það er því til mikils að vinna!
Hrafnkell Örn Guðjónsson er tónlistarmaður og trommuleikari sem hefur spilað hérlendis og erlendis með ýmsum listamönnum, eins og Agent Fresco, Emmsjé Gauta, Páli Óskari og Úlfur Úlfur. Hann er menntaður í klassísku slagverki hjá Tónmenntaskóla Reykjavíkur og í djassi og rokki hjá Tónlistarskóla FÍH og hefur kennt börnum tónlist meðfram því að vera starfandi tónlistarmaður í um tvo áratugi.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146