Svanurinn - Frumsýnt í Iðnó í febrúar - Skráning í forsölu

Svanurinn - Frumsýnt í Iðnó í febrúar - Skráning í forsölu

Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Kort

sun 14. feb 2027 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Tryggðu þér miða í forsölu á bestu kjörunum með því að skrá þig á póstlistann!

Hlekkur á forsöluna er hér á viðburðinum.

Svanurinn eftir Elizabeth Egloff er ævintýraleg ástarsaga sem er í senn bráðfyndin og hjartnæm. Verkið sló rækilega í gegn þegar það var síðast sett upp á Íslandi en nú tekur ný kynslóð leikara við keflinu og gefur þessu einstaka verki nýtt líf í Iðnó. Það eru þau Kristín Þorsteinsdóttir, Mímir Pálmason og Nikulás Hansen Daðason sem fara með hlutverkin þrjú í sýningunni sem verður frumsýnd 12. febrúar 2027.

Dóra er hjúkrunarkona sem hefur verið einstaklega óheppin í ástum. Hún er ein heima seint um kvöld þegar svanur brotlendir skyndilega inn um gluggann hjá henni. Dóra aumkar sig yfir þessum óvænta gesti og tekur að hjúkra honum af alúð. Það fer heldur betur fyrir brjóstið á Kevin, kærasta hennar, sem er mjólkurpóstur bæjarins og þar að auki giftur annarri konu.

Ekki batnar ástandið þegar svanurinn breytist í mann og fer að þvælast hálfnakinn um íbúð Dóru. Úr verður einn ótrúlegasti ástarþríhyrningur sem um getur, þar sem afbrýðisemi, ástríður og óuppfylltar þrár takast á með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Svanurinn er einstaklega vel skrifað og skemmtilegt leikrit þar sem ævintýri og hversdagsleiki, húmor og viðkvæmni fléttast saman á heillandi hátt. Áhorfandinn getur séð verkið sem nútímadæmisögu um þrá mannsins eftir ást, tengslum og frelsi – eða einfaldlega

sem undurfagran draum um ástina eina.

Leikstjóri er María Ellingsen, leikmyndahönnuður er Snorri Freyr Hilmarsson og búningahönnuðir eru Íris Ólafsdóttir og Guðlín Theodórsdóttir.

Svanurinn er framleiddur af leikhópnum Silfurskeiðinni í samstarfi við Tjarnarbíó og Iðnó.

Frumsýning í Iðnó 12. febrúar 2027.

Flytjendur