Sýningarspjall með fjölskyldu Ólafs K. Magnússonar á lokadegi sýningarinnar Á vettvangi
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
sun 6. des 2026 14:00
✨Sunnudaginn 6. desember kl. 14, mun fjölskylda Ólafs K. Magnússonar leiða gesti um sýninguna Á vettvangi. Einstakt tækifæri til að öðlast innsýn í líf og störf Ólafs.
Ókeypis inn og öll velkomin! Talað mál íslenska.
🎁Eftir sýningarspjallið verður hægt að kaupa myndirnar á sýningunni beint af veggjunum. Fullkomnar í jólapakka!
Ólafur K. Magnússon (1926–1997) var fyrsti fastráðni ljósmyndari dagblaðs á Íslandi þegar hann hóf störf á Morgunblaðinu árið 1947.
Hann lærði ljósmyndun í New York og kvikmyndagerð í Los Angeles. Þaðan bar hann með sér strauma sem höfðu mótandi áhrif á næstu kynslóðir blaðaljósmyndara.
Þegar flett er í gegnum filmusafn Ólafs, sem telur tæplega 200.000 ljósmyndir, uppljómast hversu næmt auga hann hafði fyrir fögrum og kómískum atvikum í hversdeginum. Á milli æsilegra fréttaskota af eldsvoðum og mótmælum, birtast innileg augnablik sem hann festi á filmu í nærumhverfi sínu.
Ljósmyndir Ólafs eru einstök heimild um daglegt líf, atburði og andrúmsloft og hafa margar þeirra aldrei komið fyrir augu almennings áður. Sögusviðið er miðbær Reykjavíkur en skrifstofur Morgunblaðsins voru mitt í hringiðu mannlífs og menningar megnið af starfsferli hans, sem spannaði hálfa öld. Sýningin nær yfir námsárin í Bandaríkjunum og tæp þrjátíu ár starfsferils Ólafs, 1947-1975.
Nánari upplýsingar um sýninguna: https://borgarsogusafn.is/syningar/a-vettvangi-olafur-k-magnusson-bladaljosmyndari
Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu
Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).
Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.