Verið velkomin á notalega smiðju þar sem við lærum að tálga við lítinn varðeld og njótum útiverunnar saman. Boðið verður uppá heitt kakó og Haraldur Jónasson kennir réttu tökin við að tálga. Hittumst úti fyrir framan neðri inngang Gerðubergs og klæðum okkur eftir veðri.
Athugið að gert er ráð fyrir að foreldrar eða forráðamenn taki virkan þátt í smiðjunni og fylgi börnunum.
Þátttaka er ókeypis en það er takmarkað pláss og því er skráning nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6175
Tálgað við varðeld
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
fim 22. okt 2026 14:00