Það er búið að hakka bókasafnið!

Það er búið að hakka bókasafnið!

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

sun 18. okt 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Ratleikur fyrir börn og fjölskyldur
Það hefur óprúttinn hakkari komist í kerfi og prentara bókasafnsins og dreift röngum upplýsingum víðsvegar um safnið. Bókasafnið hefur fengið Tótu spæjara til þess að rannsaka málið sem kallar núna eftir ykkar hjálp. Með því að nota ráðin stoppa, hugsa og athuga er hún viss um að þið getið leyst málið, fundið röngu upplýsingarnar og komið bókasafninu til bjargar.
Stoppa – hugsa – athuga eru leiðbeiningar frá Fjölmiðlanefnd um það hvernig hægt er að þekkja rangfærslur og falsfréttir. Sjá nánar: https://fjolmidlanefnd.is/stoppa-hugsa-athuga/
Þórunn Vignisdóttir (Tóta) stýrir ratleiknum en hún hefur starfað um árabil á almenningsbókasöfnum bæði í Reykjavík og Stokkhólmi. Hún hefur sérhæft sig í stafrænu læsi, miðlalæsi og skapandi notkun tækninnar með börnum og ungmennum.
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi sem hlaut styrk úr Bókasafnasjóði. Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur dagana 11. - 18. október sem upptakt að miðlalæsisviku í öllum átta söfnunum.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
verkefnastjóri barna- og unglingastarfs – lestrarhvatning og fræðsla
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6146