Tónleikar. Pálmi Gunnarsson og Magnús Kjartan syngja lög við texta Þorsteins Eggertssonar

Tónleikar. Pálmi Gunnarsson og Magnús Kjartan syngja lög við texta Þorsteins Eggertssonar

www.heradsskolinn.is, www.heradsskolinn.is, 840 Laugarvatn

fim 26. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Gvendur á eyrinni með Dátum, Án þín með Trúbot, Ég elska alla með Hljómum og Slappaðu af með Flowers er smá brot af þeim textum sem Þorsteinn Eggertsson hefur samið fyrir hinar ýmsu hljómsveitir. Þorsteinn er talinn vera einn farsælasti textahöfundur við íslensk dægurlög. Hann hefur samið um 800 texta en á fimmta hundrað þeirra munu hafa komið út á plötu. Því endurtökum við leikinn frá Villa Vill tónleikunum og fáum þá Pálma Gunnarsson og Magnús Kjartan ásamt hljómsveit til að syngja lög við texta Þorsteins Eggertssonar. Gaman er frá því að segja að Þorsteinn sagði okkur að hann hafi samið sinn fyrsta texta við lag þegar hann var nemandi við Héraðsskólann á Laugarvatni árið 1958. Við munum hringja inn Ljósahelgi Kvenfélags Laugdæla með þessum fimmtudags tónleikum. Takmarkað framboð miða og því best að tryggja sér miða sem fyrst og panta miða á info@heradsskolinn.is