Vespers e. Rachmaninoff - Kyrja + Yrkja - Næturvaka fyrir fórnarlömb stríðs
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
sun 1. nóv 2026 17:00
Vespers e. Rachmaninoff - Kyrja + Yrkja - Næturvaka fyrir fórnarlömb stríðs
Sunnudagur 1. nóvember 2026
Dyrnar opna kl. 16:30 – Tónleikarnir hefjast kl. 17:00
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á https://tix.is/event/22017
Sönghóparnir Kyrja og Yrkja sameina krafta sína og flytja hina stórbrotnu Næturvöku (All-Night Vigil / Vespers) eftir Sergei Rachmaninoff í Hallgrímskirkju flutta af tuttugu söngvurum án stjórnanda.
Á allraheilagramessu, 1. nóvember, komum við saman til að minnast þeirra sem látin eru og eru tónleikarnir sérstaklega tileinkaðir fórnarlömbum stríðsins í Úkraínu og Palestínu.
Kyrja og Yrkja eru metnaðarfullir sönghópar undir listrænni stjórn Philips Barkhudarov og Sólveigar Sigurðardóttur.
Dyrnar opna kl. 16:30, hálftíma fyrir tónleika.
Fyrir tónleikana og að þeim loknum er gestum boðið að kveikja á kerti til minningar um ástvini sína og í samstöðu með fórnarlömbum stríðs og ofbeldis og láta ljósið bera með sér minningu, von og frið.
Tónleikarnir eru samstarf Kyrju, Yrkju og Hallgrímskirkju og eru hluti af tónleikaröðinni Haust í Hallgrímskirkju 2026.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR