Hvammstangakirkja

Hvammstangakirkja

Kirkjuvegur 2, 530 Hvammstangi

Um staðinn


Hvammstangakirkja var vígð þann 21. júlí árið 1957. Kirkjan er teiknuð af Guðjóni Samúelssyni, arkitekt og húsameistara ríkisins, en yfirsmiður var Snorri Jóhannesson á Hvammstanga. Kirkjan er steinsteypt með bárujárnsþaki og turni.

Í gluggum er litað gler. Gluggar eru smárúðóttir, 8 á forkirkju og turni, 8 á suðurhlið kirkjuskips og voru jafnmargir á norðurhlið, en nú hefur verið opnað þar til safnaðarheimilis. Altarisstytta af Kristi er á miðju altari, sem útskorin eikarbrík er um og krossmark yfir. Kirkjan á kaleik og patínu úr silfri eftir Helga Þórðarson silfursmið á Brandsstöðum í Blöndudal. Kaleikurinn er með stimpli og ártalinu 1821 og á patínuna er skrifað: Eggert Jónsson 1822. Eggert Jónsson var bóndi og kirkjuhaldari í Kirkjuhvammi. Skírnarskál úr gleri er í útskorinni tréskál sem stendur á trésúlu. Ríkarður Jónsson skar skálina. Pípuorgel er í kirkjunni, gert af Bruno Christensen og Sönner árið 1985. Tvær klukkur eru í turni kirkjunnar.

Viðburðir framundan

  • Bergmál fjallanna - útgáfutónleikar Sigurdísar Tryggvadóttur í Hvammstangakirkju
    Bergmál fjallanna - útgáfutónleikar Sigurdísar Tryggvadóttur í Hvammstangakirkju
    sun 1. nóv 2026 14:00
    Skoða viðburð